Erum við hrátt kjöt?

Skutlan komst í eintak af sunnudagsmogganum um helgina. Þetta er algjör gullmoli þegar vanin er að skoða stafsetningarvillurnar í Blaðinu og Fréttablaðinu á sunnudögum!  Þar rambaði ég eina grein sem haka mín fór gjörsamlega niður gólf! Ég er ekki með blaðið hjá mér, en það var talað við einhverja konu sem var annað hvort forstöðumaður Barnastofu eða Kvennaathvarfinu. Ég held frekar Kvennaathvarfsins. Hún var að tala um gífurlega fjölgun kynferðisglæpa,,og skildi ekki alveg af hverju stæði á þessu. Hún sagði að forvarnir höfðu greinilega ekki borið árangur. Það var talað um þessar athugasemdir í heilsíðufrétt. Mér fannst þetta svo aldeilis vitlaust, Af hverju??,, hverjar eru skýringar af þessu að aldrei fleiri glæpir hafa verið tilkynntir. Er það ekki út af þessu forvörnum. Að fólk er kannski búið að lifa við kynferðislega misnotkun sem árum skiptir er loksins að koma í dagsljósið og tilkynna glæpinn. Að þetta er ekkert huss lengur!!Mbl.is lét frétt um daginn af vefinn hjá sér af einhverjum Múslímskum prest að hann sagði að ef konur gengju í Vestrænum klæðnaði þá er þeim bara bjóða karlmönnum að láta nauðga sér. Hann kom með þessa viðlíkingu að ef hrátt kjöt er skilið eftir út á götu,,auðvitað kemur kötturinn og borðar kjötið! Ég hló nú af þessari vitleysu innra með mér í smá stund og velti nú þessu aðeins fyrir mér! Ég hef alltaf passa mig ekki ganga ein um einhver skúmaskot í miðbænum á kvöldin, helst að ganga eftir fjölförnum götum ef ég er ein.  Aldrei ganga heim til mín, helst taka leigubíl. Allt þetta hafa nú verið góð og gild ráð í gegnum tíðina. Ef ég tek þessi ráð Múslímska prestsins og færi þau í yfir í vestræn gildi. Er ég ekki að fara eftir þeim. Ég er ekki að skilja sjálfan mig eftir á tómri götu. Ég er að reyna að verja mig frá kisunum. Hvernig stendur á því að við konurnar erum búnar að troða þessum ráðum í hausinn á okkur. Ekki pæla strákar í þessu. Ég veit um fullt af strákum sem búa í miðbænum sem eru ekki beint að pæla í að þeir þurfa að ganga um skúmaskot til þess að komast heim til sín. Miðað við fréttir síðustu daga þá er ekki furða að við reynum ennþá að fara eftir þessum ráðum.  En við höfum réttin til þess að ganga óáreittar um miðbæ Reykjavíkur skiptir engum máli hvað klukkan er. Við eigum ekki þurfa að óttast skúmaskotin í miðbænum.Fyrst að það er búið að vera mikið af forvörnum gegn kynferðisglæpum og greinilega finnst mér að það hefur gengið. Er ekki komin tími að forvarnir ráðast á hugsunarháttinn hjá sumu fólki sem finnst  að það sé allt í lagi að fremja kynferðisbrot, hvort sem það er að nauðga einhverjum eða fremja kynferðisbrot gagnvart börnum
mbl.is Tilraun til nauðgunar á skemmtistað
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband